Frábær frammistaða á Fightstar Interclub 22

rvkmma.png

Um helgina héldu fjórir kappar frá RVKMMA utan til Leeds, ásamt Bjarka Þór Pálssyni, til að stíga sín fyrstu skref á ferlinum. Þeir Ívar Orri, Jakob Borgar, Sigurður Óli og Svanur Þór kepptu á svokölluðu Interclub móti Fight Star Championship deildarinnar, þar sem margir íslenskir keppendur hafa barist við góðan orðstír.

Ívar Orri hefur æft í 4 ár og var að keppa sinn fyrsta MMA bardaga. Hann átti glæsilega frammistöðu í búrinu, eftir að hafa fengið nýjan andstæðing þegar hann var kominn inn í búrið. Upprunalegi andstæðingurinn hætti við rétt áður en fyrsta lota átti að hefjast, en nýr andstæðingur var fundinn í snatri og Ívar kláraði hann í fyrstu lotu með key lock uppgjafartaki. Ívar keppti einnig K1 kickbox bardaga sem hann kláraði í annarri lotu. Glæsileg framistaða hjá Ívari, og ljóst að hann löngu tilbúinn í búrið. Klippur úr bardögunum má sjá á Instagram síðu Ívars @Ivardalt

Jakob Borgar var að keppa í annað sinn á Interclub hjá Fightstar. Í þetta sinn keppti hann í þremur greinum; MMA, boxi og grappling. Jakob hefur tekið miklum framförum frá því hann keppti síðast í mars, þó hann hafi í þetta sinn fengið sterkari andstæðinga og beðið lægri hlut í MMA bardaga sínum. Í grappling gerði hann sér lítið fyrir og sigraði og í hnefaleikum gerði hann jafntefli. Bætingar á öllum sviðum og verður spennandi að fylgjast með drengnum næstu mánuði og ár. Sexual white chocolate will be on everyones lips soon. @Jakobbmma

Svanur Þór var að keppa sinn fyrsta MMA bardaga, en hann hefur um árabil keppt í Taekwondo. Undanfarna mánuði hefur hann unnið að því að aðlaga bakgrunn sinn að MMA ásamt því að vinna hart í gólfglímunni og wrestlinginu. Þrátt fyrir að mæta andstæðingi sem var um 10kg þyngri hafði Svanur mikla yfirburði í bardaganum. Gaman verður að fylgjast með framhaldinu hjá Svan, sem ætlar alla leið. @Svanurthor

Sigurður Óli, glímukóngur að vestan, keppti í fyrsta sinn í MMA á mótinu. Sóli byrjaði að æfa MMA í janúar, eftir að hafa æft Íslenska Glímu og handknattleik um árabil. Virkilega hraustu og efnilegur drengur hér á ferð, sem hefur tekið þvílíkum framförum að undanförnu. Bardagann kláraði hann í 2. lotu með side choke efir fléttu í gólfinu sem hann hefur undanfarið æft með Eiði Sigurðssyni, glímuþjálfara. @sigolirunars

Flott helgi að baki og ljóst að mikill efniviður er til staðar til áframhaldandi uppbyggingar næstu árin. Drengirnir eiga hrós skilið og koma fullir reynslu aftur heim.

Reykjavík MMA