5 LotuForm

5 LotuForm - almennir tímar


Eru frábærir þrektímar sem henta öllum þeim sem vilja koma sér í form og æfa í góðum félagsskap.

Tímarnir eru byggðir upp sem HIIT (high intensity interval training). Tímarnir eru fjölbreyttir og lögð er áhersla á gott form við framkvæmd allra æfinga.

Við skipulag tímanna eru nokkrir hlutir hafðir í forgangi:

  • Æfingarnar séu við allra hæfi, iðkendur vinna á eigin tempói

  • Æfingarnar þjálfi líkamann í sem flestum hreyfi ferlum

  • Ákefðin sé nægileg til þess að bæta hjarta og æðakerfið ásamt því að auka styrk og vöðvaúthald

  • Æfingarnar séu fjölbreyttar og síðast en ekki síst skemmtilegar

Vikulega eru 9 tímar í boði í stundatöflu kvelds og morgna og því ættu allir að geta fundið tíma sem henta sér.

  • Mánudögum kl 06:10 og 17:10

  • Þriðjudögum kl 12:10

  • Miðvikudögum kl 06:10 og 17:10

  • Fimmtudögum kl 17:10

  • Föstudögum kl 06:10 og 17:10

  • Laugardögum kl 10:00

5 Lotu form - Grunnnámskeið


Markmiðið með grunnnámskeiðunum er að leggja áherslu á rétta líkamsbeitingu við æfingar.

Farið er ítarlega yfir tæknilega útfærslu á helstu ketilbjölluæfingum. Við þetta öðlast maður aukið öryggi á æfingum ásamt því að bæta hreyfifærni sína.

Námskeiðið fer fram í lokuðum hópi tvisvar sinnum í viku, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20:10 undir handleiðslu reyndra þjálfara.

Dagsetningar grunnámskeiða eru auglýstar á forsíðu rvkmma.is