Markmið með námskeiðinu:

Á námskeiðinu er farið yfir grunntækni í BJJ, iðkendur kynnast helstu stöðum og hugtökum í íþróttinni og fá að spreyta sig í frjálsum glímulotum í öruggu æfingaumhverfi.

BJJ er krefjandi og skemmtileg íþrótt þar sem hugur og líkamleg geta mætast. Íþróttin fer sívaxandi út um allan heim
og hentar fyrir alla aldurshópa.

 

Upplýsingar um námskeið:

Reykjavík MMA býður upp á grunnnámskeið í Brazilian Jiu Jitsu (BJJ) þann 6.Maí.

Fjögurra vikna námskeið sem verður mánudaga og miðvikudaga kl 20:15

Innifalið í verði námskeiðsins er aðgangur að þrektímunum okkar Fimmlotuform.

 

Gott að vita 

  1. Verð fyrir námskeið er 25.900 kr. Námskeið fæst ekki endurgreitt eftir skráningu. Ef eitthvað kemur uppá þá er hægt að senda okkur póst og þú getur átt námskeiðið inni. Email: Rvkmma@rvkmma.is

  2.  Á námskeiðinu er tekið mið af aldri og getu hvers og eins og fer hver á sínum hraða.

  3. Mælst er með að fólk mæti í venjulegum íþróttafatnaði án rennilása. Gott er að hafa meðferðist vatnsbrúsa á æfingar.

  4. Ef áhugi vaknar og þú vilt halda áfram að námskeiði loknu þá er hægt að skrá sig í áskrift og mæta í framhaldstímana okkar (Bjj2og Nogi2) sjá stundatöflu.

  5. Innifalið í verðinu er aðgangur að þrektímunum okkar 5LotuForm sem eru 13 sinnum í viku.