Reykjavík MMA býður upp á helgarnámskeið í boxi, dagana 11-12 Janúar.

Tveggja daga námskeið sem haldið verður laugardag og sunnudag, 8 klst í heildina.

Verð kr. 29.990

Þjálfari námsskeiðsins er Remek Duda Maríuson en hann hefur áralanga reynslu af hnefaleikum og öðrum bardagaíþróttum og hefur verið virkur í keppnissenunni hérlendis undanfarin ár.

Dagskrá námskeiðs:

Laugardagur

  • 10:00-12:00 kennsla 

  • 12:00-12:50 pása

  • 12:50-14:00 kennsla

    Sunnudagur

  • 10:00-12:00 kennsla 

  • 12:00-12:30 pása 

  • 12:30-14:00 kennsla 

  • Ávextir verða í boði svo það verður hægt að næra sig létt á meðan námskeiðinu stendur. 



Markmið með námskeiðinu:

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu grunnatriði í boxi með það að markmiði að veita nemendum grunnskilning á tækni í íþróttinni. Námskeiðið hentar vel fyrir byrjendur, óháð fyrri reynslu en einnig þeim sem hafa ekki mætt í langan tíma eða vilja fara betur í grunninn.

Þeir sem hafa þreytt námskeiðið geta svo mætt í framhaldstíma í boxi samkvæmt stundatöflu hjá RVK MMA.

Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja stíga út fyrir þægindaramman og prufa eitthvað nýtt, læra undirstöðu atriði í boxi og á sama tíma svitna og hafa gaman undir öruggri handleiðslu reyndra þjálfara.


 


Gott að vita 

  1. Verð fyrir námskeið er 29.990 kr. Námskeið fæst ekki endurgreitt eftir skráningu. Ef eitthvað kemur uppá þá er hægt að senda okkur póst og þú getur átt námskeiðið inni. Email: rvkmma@rvkmma.is

  2.  Á námskeiðinu er tekið mið af aldri og getu hvers og eins og fer hver á sínum hraða.

  3. Mælst er með til að fólk mæti í venjulegum íþróttafatnaði án rennilása. Gott er að hafa meðferðis vatnsbrúsa á æfingar.

  4. Box hanskar og skór eru ekki nauðsynlegir á námskeiðinu en mælt er með að eiga slíkan útbúnað ef viðkomandi vill halda áfram að námskeiði loknu. Hægt er að versla útbúnað í verslun okkar sem staðsett er í móttökunni.

  5. Ef áhugi vaknar og þú vilt halda áfram að námskeiði loknu er hægt að skrá sig í áskrift og mæta í framhaldstímana (Box2 í stundaskrá) sem eru á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl 18:10.